Bloggfærslur mánaðarins, mars 2017
21.3.2017 | 23:07
Upplýsingar fyrir þá sem vilja ekki lengur vera í viðskiptum við vogunarsjóðina eða útibú þeirra.
Ég vil nota tækifærið til að minna á frábæran valkost fyrir þá sem vilja ekki lengur vera í viðskiptum við vogunarsjóðina eða útibú þeirra.
Það er lítill sparisjóður fyrir norðan sem heitir Sparisjóður Suður Þingeyinga sem er annar af tveimur fjármálastofnunum sem EKKI þurfti á aðstoð ríkisins að halda eftir hrun þó aðrar fjármálastofnanir og kerfið vilji núna losna við þá af markaðinum.
Ég er sjálfur í viðskiptum við þá og Hagsmunasamtök heimilanna líka og fullt af fólki sem ég þekki og allir ánægðir.
Mæli sérstaklega með útibúinu að Laugum, skilið kveðju norður fyrir mig.
http://www.spar.is/spthin-sudur-thingeyinga/laugar
21.3.2017 | 22:53
Þetta gefur greiðslumati bankans hér eftir sérstakan stimpil
Kaupandi Arion banka er í ruslflokki matsfyrirtækja.
Þetta gefur greiðslumati bankans hér eftir sérstakan stimpil því venjuleg fjölskylda sem vill fá lán hjá bankanum til að kaupa sér heimili þarf að fara í erfitt greiðslumat og er skoðaður í bak og fyrir og þarf meðal annars að skila inn launaseðlum, framfærslu og þarf þar að auki að þola að bankinn nái í mat Creditinfo á greiðsluhæfi fjölskyldunnar langt aftur í tímann.
En ef óskilgreindur aðili sem enginn veit hver er kaupir bankann þá er allt í lagi að hann sé í ruslflokki og fengi ekki greiðslumat til að kaupa íbúð ef hann þyrfti að fara í gegnum greiðlsumat bankans.
Og þá, eftir kaupin sem forsætisráðherra hampar á fullu, fattar fjármálaráðherrann okkar allt í einu að það sé ekki í lagi að einhver sem enginn veit hver er kaupi bankann.
Er ekki allt að fara sömu leið og áður, söngurinn er allavega samur ?
Kaupandi Arion í ruslflokk | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |