Lífeyrissjóðirnir "okkar"

Á sama tíma og Lífeyrissjóðirnir "okkar" eru að fjármagna tug og hundruð milljarða hótel og skrifstofubyggingar út um allan bæ sem halda nánast öllum iðnaðarmönnunum okkar uppteknum við það þá vantar unga fólkinu okkar og raunar öllum íslendingum að minnsta kosti 17.000 íbúðir til að lifa í.
Einnig hafa þessir sömu lífeyrissjóðir "okkar" á sama tíma verið að fjármagna uppkaup fárra aðila og stórra leigufélaga á nánast öllum lausum íbúðum sem komið hafa á sölu og líka þeim íbúðum sem bankar og Íbúðalánasjóður hafa verið að taka af fólkinu í landinu undanfarin ár og þannig stuðlað að hækkun á fasteignaverði og skorti á heimilum fyrir fólk.
Því miður get ég lofað ykkur því að núna á næstu vikum og í sumar þá fara þessir aðilar og leigufélög að selja þessar íbúðir á uppsprengdu verði áður en uppbygging fer af stað á fasteignamarkaði. 
Kaupendurnir verða almenningur á þeim íbúðum sem verða seldar í stykkjatali út úr sumum leigufélögunum á meðan sum leigufélögin verða seld í heilu lagi og getið hverjir verða kaupendurnir að þeim á uppsprengdu verði, jú, Lífeyrissjóðirnir "okkar". 
Þá kemur líka berlega í ljós að þetta var og er skiplagt á þennan hátt, þ.e. kaupa allt upp og halda iðnaðarmönnunum uppteknum við annað en íbúðarbyggingar til að skapa skort á fasteignamarkaði.
Þetta er allt gert á kostnað almennings með vitund og vilja þeirra sem stjórna lífeyrissjóðunum "okkar". 
Hverjir græða á þessu öllu saman, jú þessir fáu sem fengu lánaða peninga hjá Lífeyrissjóðunum "okkar" til að kaupa þessar íbúðir.


mbl.is Mikið í húfi fyrir lífeyrissjóði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tryggvi Helgason

Myndin sem fylgir þessari frétt, sýnir glögglega hvílíkt "ofur-brjálæði" er þarna að gerast. Sagt er að einhver útlend gistihúsakeðja, sem kallast "Marriott", sé þarna að byggja nýtísku hótel, allt á "heimsmælikvarða", það á að vera eitthvað alveg sérstaklega glæsilegt. En er það nú bara þannig?

Erlend fyrirtæki geta gegn greiðslu, heimilað öðrum að nota sitt nafn, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Það er því sennilegt að Marriott fyrirtækið eigi ekki eina einustu krónu í þessu æfintýri, sem verið er að byggja út í gömlu höfnina í Reykjavík. En með svona gómsætt "agn" á önginum, þá hefur verið auðvelt að ljúga að lífeyrissjóðunum og fá þá til þess, að setja peninga íslendsks launafólks í þetta, sem að mínu mati telst algjört glapræði. Þá eru allskyns klækir notaðir til þess að hylma yfir hverjir séu raunverulegir eigendur, og eitthvert hollendskt félag nefnt í því sambandi. Það lítur út fyrir, eins og að milljarðarnir sem hurfu út úr landinu, séu að koma aftur.

Og svo er það spurningin, hvort þetta hús verði nokkru sinni byggt? Ég efast um að svo verði.

Tryggvi Helgason, 5.5.2018 kl. 18:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband