Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2014

Punkturinn var hvernig EFTA dómstólinn tók á þessu hjá sér fannst mér.

Fréttanefið hjá MBL er greinilega eitthvað bogið en þeir lesa Facebook síðu HH.

Það er samt sérkennilegt að þeir skuli ekki minnast á hvernig EFTA dómstólinn tók á þessu hjá sér, það var punkturinn fannst mér. 

Fréttanefin hjá nánast öllum fjölmiðlum eru annað hvort lokuð eð mjög bogin eða hvað finnst ykkur ?

EFTA dómstóllinn skar út um að Páll Hreinsson og varadómarar hans gætu dæmt í verðtryggðum málum fyrir EFTA dóminum þó þeir væru sjálfir með verðtrtyggð lán því þau væru það almenn á Íslandi að ekki væri hægt að verða vanhæfur þó dómarinn væri sjálfur með slíkt lán. 

Páll Hreinsson dómari EFTA dómstólsins spurði dóminn greinilega hvort hann væri vanhæfur vegna þess að hann og báðir íslensku varadómararnir væru með sambærileg lán og væru fyrir EFTA dóminum og svarið er að það sé ekki þar sem málið sé of almennt og varði um 90.000 heimili á íslandi og hann og varamenn hans séu því ekki vanhæfir. 

Sennilega hefur þessi spurning vaknað eftir að dómarinn í máli HH fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdi sjálfan sig vanhæfan og virtist ekki átta sig á því að með því dæmdi hann alla dómara dómsins vanhæfa. það eru greinilega alvöru vinnubrögð fyrir EFTA dóminum því þeir spurðu réttrar spurningar og gáfu rétt og rökstutt svar án þess að tefja málið.

Að sama skapi styður þetta þau rök sem við í Hagsmunasamtökum heimilanna vorum búnir að setja fram að með því að Ásmundur Helgason dæmdi sig vanhæfan vegna þess að hann væri með verðtrgggt lán þá væri hann sem dómarinn í okkar máli að dæma sig hæfan því það eru nánast allir á íslandi tengdir verðtryggðu máli og einnig dómarar eða aðilar tengdir þeim.
Við erum því með unnið mál með að dómarinn getur ekki sagt sig frá málinu.


EFTA dómstóllinn spurði réttrar spurningar og gaf rétt og rökstutt svar án þess að tefja málið.

Það voru að koma frábærar fréttir frá EFTA dómstólnum sem varða verðtryggingarmálið okkar í HH hér heima fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Páll Hreinsson dómari EFTA dómstólsins spurði dóminn greinilega hvort hann væri vanhæfur vegna þess að hann og báðir íslensku varadómararnir væru með sambærileg lán og væru fyrir EFTA dóminum og svarið er að það sé ekki þar sem málið sé of almennt og varði um 90.000 heimili á íslandi og hann og varamenn hans séu því ekki vanhæfir. 
Sennilega hefur þessi spurning vaknað eftir að dómarinn í máli HH fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdi sjálfan sig vanhæfan og virtist ekki átta sig á því að með því dæmdi hann alla dómara dómsins vanhæfa. það eru greinilega alvöru vinnubrögð fyrir EFTA dóminum því þeir spurðu réttrar spurningar og gáfu rétt og rökstutt svar án þess að tefja málið.

Að sama skapi styður þetta þau rök sem við í Hagsmunasamtökum heimilanna vorum búnir að setja fram að með því að Ásmundur Helgason dæmdi sig vanhæfan vegna þess að hann væri með verðtrgggt lán þá væri hann sem dómarinn í okkar máli að dæma sig hæfan því það eru nánast allir á íslandi tengdir verðtryggðu máli og einnig dómarar eða aðilar tengdir þeim.
Við erum því með unnið mál með að dómarinn getur ekki sagt sig frá málinu.

Nú erum við að láta þýða þetta skjal á mettíma og senda með kærunni á Hæstarétt þar sem við krefjumst þess að dómarinn fái ekki að segja sig frá málinu. 
Þetta er allt að koma.


mbl.is Dómari ákvað að víkja sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það eru miklu fleiri í alvarlegum vanskilum og vandræðum heldur en þessar tölur segja til um.

Það eru miklu fleiri í alvarlegum vanskilum og vandræðum heldur en þessar tölur segja til um því samkvæmt þesssri skilgreiningu ert þú ekki lengur í alvarlegum vanskilum þegar þú ert orðinn t.d. gjaldþrota. 
Ég hefði talið að sá og sú fjölskylda sem er orðinn gjaldþrota sé í alvarlegum vanskilum og ekki síður alvarlegum vandræðum því gera má ráð fyrir að sá sem er orðinn gjaldþrota sé búinn að missa heimili sitt og eigi þar að auki í alvarlegum vandræðum með að fá leigt húsnæði fyrir sig og fjölskyldu sína þar sem hann er gjaldþrota. 
Það er hægt að setja upplýsingar fram á hinn ýmsa hátt en það er í raun hægt að bæta þeim sem hafa verið gerðir gjaldþrota frá hruni við þessa tölu  því þó í fréttini segi að þeim fækki sem eru skráðir í alvarlegum vanskilum þá er þeim í raun að fjölga ef við viljum telja rétt en það hefur verið alvarleg tilhneiging til að gera það ekki og reyna að segja okkur og öðrum að allt sé hér á réttri leið.
Fyrir þá sem hafa fylgst með undanfarin ár og hafa viljað vita sannleikann þá er það sem ég segi hér fyrir ofan engin ný sannindi en fjölmiðlar, þ.e. fjórða valdið svokallaða, verður að fara að vakna og kafa dýpra í það sem þeir setja fram. 
Að birta athugasenda og rannsóknarlaust allar fréttir varðandi stöðu fjölskyldnanna og heimilanna á íslandi því þeir eiga jú sjálfir heimili og fjölskyldur er það ekki og það hlýtur að bíta nokkuð svipað í þau heimili eins og önnur heimili landsins.

mbl.is 27.438 í alvarlegum vanskilum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband