21.2.2013 | 21:54
Alveg óþarfi að setja þjóðfélagið á hliðina með ólöglegri verðtryggingu.
Mér finnst raunar líka algjör óþarfi að setja allt samfélagið á hvolf með því að leyfa ólöglegri verðtrygging neytendalána að hækka á lánin okkar.
Finnst verðtryggða nafna mínum virkilega allt í lagi í þjóðfélaginu í dag, er hann ekki að grínast.
Mér finnst raunar alveg með eindæmum hvað núverandi og verðandi þingmönnum er mikið sama um framkvæmd og eftirfylgni laga sem gilda á íslandinu góða.
Nú erum við nafni, þ.e. verkalýðsforinginn á Akranesi, fyrir hönd VLFA og ég sem einn af liðsmönnum Hagsmunasamtaka heimilanna búnir að sýna fram á verðtryggingin er ólögleg og þeir láta eins og það þurfi bara að bíða það af sér í nokkur ár í viðbót eða afnema hana í áföngum eða eins og formaður flokks verðtryggða nafna okkar vill gera, að leiðrétta ólöglegheitin SMÁ saman í gegnum skattkerfið. Semsagt allt nema fara að lögum.
Það þarf að fá flýtimeðferð á kæru okkar óverðtryggðu nafnanna á verðtrygginguna sem ólöhglega áður en lengra verður haldið.
Þarf einhver að fara að lögum ef þingmennirnir okkar þurfa þess ekki, er þetta það þjóðfélag sem við viljum, ég held ekki.
![]() |
Óþarfi að setja heilt samfélag á hvolf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Villi Fjárfestir segir að það hafi ekki orðið neinn Forsendubrestur við Hrunið,þegar gengi dollars tvöfaldaðist: LOL
Jón Ólafur (IP-tala skráð) 21.2.2013 kl. 22:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.