Bloggfærslur mánaðarins, júní 2008
11.6.2008 | 12:03
Ósk um ábyrga fréttamennsku.
Á þessum ólgu og óvissutímum hlítur að vera hægt, ef einhvern tímann, að gera þá kröfu til fjölmiðla að þeir vandi fréttaflutning sinn af jafn viðkvæmum málum og húsnæðismarkaðurinn er í dag. Að setja þessa fyrirsögn á þessa frétt er fáránlegt og mbl.is ekki boðlegt að mínu mati. Ég hef hingað til verið þokkalega sáttur við fréttir mbl.is af þessum málaflokki og þó að þessi tiltekna frétt sé komin úr 24 stundum þá finnst mér mbl.is setja niður við svona æsifréttar fyrirsagnarstíl. Við höfum sorpblað sem hefur hingað til verið einrátt á þeim markaði og vona ég að 24 stundir séu ekki að fara í þá áttina með nýjum mönnum í brúnni.
Engin lán á ný hús | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt 31.10.2009 kl. 15:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)