Skuldaleiðréttingarleið ríkisstjórnarinnar er ekkert án afnáms verðtryggingar lánanna.

Skuldaleiðréttingarleið ríkisstjórnarinnar er ekkert.
Skuldaleiðréttingarleið ríkisstjórnarinnar er ekkert án afnáms verðtryggingar lánanna.
Skuldaleiðréttingarleið ríkisstjórnarinnar er ekkert í samanburði við ólögmæti útfærslu verðtryggingar neytendalánanna.
Skuldaleiðréttingarleið ríkisstjórnarinnar er ekkert nema til að þagga niður í þeim sem finnst þeir ekkert hafa gert á rúmu ári.
Skuldaleiðréttingarleið ríkisstjórnarinnar er ekkert því það er ekki búið að samþykkja hana á Alþingi eða í þeim nefndum sem um hana þurfa að fjalla.
Skuldaleiðréttingarleið ríkisstjórnarinnar er ekkert fyrr en ef og kannski hún verður samþykkt seint í sumar eða í haust og heimilin hafa ekki efni á að bíða eftir því.
Skuldaleiðréttingarleið ríkisstjórnarinnar er ekkert nema ódýr leið til að kaupa sér tíma fram yfir sveitastjórnarkosningarnar. 
Það eina sem er eitthvað og mun breyta íslensku þjóðfélagi er dómur í máli Hagsmunasamtaka heimilanna um ólögmæta framkvæmd og útfærslu verðtryggingar neytendalána allt aftur til 11 janúar 2001.


mbl.is „Stærstu efndir Íslandssögunnar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband