6.12.2013 | 23:02
Þó fyrr hefði verið !
Ég sem formaður Hagsmunasamtaka heimilanna (HH) fagnar því að innanríkisráðherra, Hanna Birna Kristjánsdóttir, skuli loks hafabrugðist við ítrekuðum áskorunum samtakanna um að stöðva nauðungarsölur á heimilum neytenda.
Ég og varaformaður samtakanna áttum fund með innanríkisráðherra þann 9. október þar sem þessi krafa var sett fram, annars vegar vegna þess að samtökin telja nauðungaruppboð vera óréttmæt nema að undangengnum dómsúrskurði og hins vegar vegna þess að ótækt væri að bjóða upp húsnæði fólks á meðan beðið væri boðaðra aðgerða ríkisstjórnarinnar. Svör ráðherrans við kröfum samtakanna voru á þá leið að stöðvun nauðungaruppboða gengi gegn stjórnarskárvörum réttindum kröfuhafa og einnig lét hún hafa eftir sér að það væri ólöglegt og ósiðlegt gagnvart þeim sem þegar hefði verið selt ofan af að stoppa nauðungarsölurnar. Þegar ráðherrann var spurð nánar út í þetta í fjölmiðlaumræðum um nauðungaruppboð í kjölfar fundarins svaraði ráðherra því til að þetta væri samkvæmt áliti helstu sérfræðinga á þessu sviði.
Ég og við í HH vorum síður en svo sátt við þessi svör og skoruðum þann 16. október á ráðherrann að skýra nánar í hverju þetta álit helstu sérfræðinga á þessu sviði um ófrávíkjanlegan rétt kröfuhafa felist. Þegar engin svör bárust frá ráðuneytinu ítrekuðum við áskorunina þann 18. október. Þeirri ítrekun hefur ekki verið svarað nema með því að vísa í þessi ssömu orð ráðherrans og málið komið í hring.
Nú virðast þessir helstu sérfræðingar Innanríkisráðherra um nauðungaruppboð hafa komist að því að ég og við í HH höfum haft rétt fyrir okkur, að vel sé hægt að stöðva nauðungaruppboð ef pólitískur vilji standi til þess. Hljóti frumvarpið samþykki þingsins verður því fjölskyldum gert kleift að fresta nauðungarsölum sem krafist er á heimilum þeirra fram yfir 1. júlí 2014, og skapa sér svigrúm til að bjarga heimili sínu frá því að verða tekið af þeim með svo harkalegum aðgerðum. Mér þætti gaman að fá að hitta þessa færu sérfræðinga Innanríkisráðherra einhvern tímann.
Hugur okkar í Hagsmunasamtökum heimilanna er þó þessa stundina með þeim sem standa frammi fyrir því núna rétt fyrir jólin, þangað til og ef þetta verður samþykkt á Alþingi, að heimili þeirra kunni að verða selt ofan af þeim. Einnig er hugur okkar hjá þeim sem þegar hafa misst heimili sín á nauðungarsölum sem haldnar hafa verið á ólöglegum grundvelli. Ég vil vekja athygli á því að gildandi lög leyfa ekki endurupptökur á nauðungarsölum, jafnvel þó sýnt hafi verið fram á að þær hafi verið fengnar fram ólöglega í mörgum tilvikum, en úr því þarf jafnframt að bæta og er það eitt af því sem ég og við erum að vinna að. Mér finnst að stöðva ætti allar nauðungarsölur sem fyrirliggjandi eru hjá Sýslumönnum landsins fram að því að lög þessi verða samþykkt á Alþingi. Einnig finnst mér að það ætti að auka samþykkisfrestinn til 1. júlí 2014 á þeim nauðungarsölum sem þegar hafa farið fram í þeim tilvikum sem hann er ekki liðinn nú þegar.
Einnig fagna ég og við í HH að á sama tíma hafi Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðisráðherra lagt fram frumvarp sem gerir ráð fyrir fjárhagsaðstoð, fjármagnaða með gjaldi á fjármálafyrirtækin, vegna tryggingar fyrir skiptakostnaði þeirra sem vilja fara fram á gjaldþrot. Því fólki hefur hingað til verið haldið í árangurslausu fjárnámi þar sem fjármálastofnanir hafa ógjarnan viljað fara fram á gjaldþrot skuldara, eftir að fyrningartími krafna við gjaldþrotaskipti var styttur í tvö ár. Með því að auðvelda skuldurum að leita gjaldþrots má segja að loksins hafi fjármálafyrirtæki fengið hvata til að semja frekar við fólk heldur en að geta haft það undir hælnum endalaust.
Þess má geta að bæði framangreind atriði eru meðal þeirra sem Hagsmunasamtök heimilanna lögðu hvað mesta áherslu á íumsögn sinni um þingsályktunartillögu forsætisráðherra sem liggur til grundvallar aðgerðum stjórnvalda vegna skuldavanda heimilanna.
Nauðungarsölum frestað í hálft ár | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Í sjálfu sér er þetta ekki mjög frábrugðið því sem núna er. Þeir sem geta sýnt að hagur þeirra sé að batna og að þeir komi til með að geta staðið í skilum geta samið um frestun. Eini munurinn er að núna ætlar ríkið að axla ábyrgðina og taka á sig kostnaðinn.
"Leiðréttingin" gagnast þeim sem verst eru staddir lítið og því fá þeir enga frestun. Þú þarft að vera með þokkalegar tekjur og ekki hafa þurft nein úrræði sem áður stóðu til boða til að fá eitthvað að ráði út úr leiðréttingapakkanum. Og sért þú með þokkalegar tekjur og hafir ekki þurft nein úrræði sem áður stóðu til boða þá ert þú ekki að missa heimilið á nauðungaruppboði.
Ufsi (IP-tala skráð) 7.12.2013 kl. 12:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.