15.1.2011 | 16:14
Þeir spila á von og trú fólks um leiðréttingu lána og eru einnig að reyna að minnka líkur á mótmælum á mánudaginn
Stjórnmálamenn spila á von og trú fólks um leiðréttingu lána og eru einnig að reyna að minnka líkur á mótmælum á mánudaginn, ég er viss um að það fer að sjóða upp úr, sérstaklega þegar fólk fer að átta sig á því að verið er að spila með það. Þessar svokölluðu leiðréttingar kosta ekkert fyrir bankana þegar verið er að færa lán í 110 % veðsetningu, veðsetningin var ónýt áður, ef þeim tekst að fá fólk sem var t.d. með 150 % veðsetningu og hafði ekki efni á borga, til að borga af 110 % veðsetningu þá eru þeir að græða en ekki tapa því eðlilegt er að skuldari skuldi ekki meira en nemur verðmæti eignarinnar ef hann lagði eitthvað fram sjálfur í upphafi, ef bankinn lánaði honum 100 % í upphafi þá verður bankinn sjálfur að taka tapið af því. Það er enginn akkur í því fyrir neinn að skulda umfram verðmæti húsnæðissins síns og sinnar fjölskyldu.
Að gera eins og ríkisstjórnin hefur nýverið sett lög um, að setja lægstu óverðtryggða vexti seðlabankans á öll húsnæðislán eftir Hæstaréttardóm um bílalánasamning er náttúrulega fáránlegt. Það sér hver heilvita maður að það eiga ekki að vera og hafa aldrei, hingað til, verið sömu vextir á skammlífri munaðarvöru eins og bílum og langtíma nauðsynjavöru eins og fasteign.
Þar sem það virðist vera mikill misskilningur hjá fólki og því miður ofurtrú, eða réttara sagt ofurvon á að ríkisstjórnin sé að gera eitthvað gott og rétt fyrir skuldara ætla ég að fara aðeins á einfaldan hátt yfir hvernig grunnurinn að uppbyggingu óverðtryggðra lána eins og nota á við talnaleik ríkistjórnarinnar vegna umbreytingar gengislánanna er fundinn. Fyrst eru almennir vextir í þeim lánaflokki sem lána á til fundnir, í okkar tilviki ætti að nota lægstu mögulegu vexti vegna þess að verið er að lána til húsnæðskaupa. Segjum 4,15 % eins og var á þeim tíma sem um ræðir, svo er verðbólgunni á þeim tíma bætt á það og til að vera nokkuð öruggir með þetta þá er c.a. 1 % bætt ofan á til að hafa þetta öruggt, fyrir bankann nota bene. Segjum að verðbólgan hafi verið 4,35 % við lánveitinguna þá fær lántakinn lánið afgreitt með 4,15 % vöxtum + 4,35 % vegna verðbólgu + 1 % til öryggis, samtals gera þetta því 9,5 % í óverðtryggðum vöxtum. Til að bankinn taki nú ekki of mikla áhættu þá eru þetta nær undantekningarlaust breytilegir vextir, þannig að ef t.d. eftir sex mánuði, verði verðbólgan komin upp í 5,35 % þá eru vextir óverðtryggða lánsins okkar komnir upp í 10,5 %. Á sama tíma er sá sem er með venjulegt verðtryggt húsnæðislán að borga 9,5 % vexti, þ.e. 4,15 % vegna vaxtanna og 5,35 vegna verðbólgunnar og ekkert 1 % álag. Útkoman er því sú að sá sem er með óverðtryggt lán er að borga c.a. 1 % hærri vexti en sá sem er með venjulegt verðtryggt lán.
Á norðurlöndunum, þ.e. í þeim löndum sem við miðum okkur hvað mest við eru lán almennings til húsnæðiskaupa nær undantekningarlaust óverðtryggð og með föstum frá um 2,5 % til um 5 % vöxtum út lánstímann en einnig eru til lán með breytilegum vöxtum en þó með hámarki á hvað vextirnir geta farið hátt, t.d. held ég að í Danmörku séu þeir með 6 % hámarki og eru þau þá með lægri vöxtum en lánin með föstu vöxtunum þar sem lánveitandinn þarf ekki að taka eins mikla áhættu með því móti að þeirra mati, hér er öllu snúið við og notað gegn lántakendum, enda allt traust farið sem við höfðum til banka og fjármálafyrirtækja.
Aðgerðir vegna yfirveðsetninga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.