Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál

Þetta er nú ekkert

Íslenskir ráðamenn og ráðherrar og allt þeirra eftirlitskerfi og kerfiskallar voru nú heima hjá sér þegar nokkrir óprúttnir þjófar stálu Íslenskum efnahag eins og hann leggur sig og til næstu fimmtán eða tuttugu ára sýnist manni. Það er engin frétt þó einum ráðherrabíl sé stolið, ég mundi helst óska þess að þeir mundu stela öllum Íslensku ráðherrunum, þá mundi kannski eitthvað fara að gerast hér á landi fyrir fólkið sem situr nú í yfirveðsettum eignum sínum.
mbl.is Þýskum ráðherrabíl stolið á Spáni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björn Þorri á heiður skilinn fyrir baráttu sína.

Alveg sammála öllu sem þarna kemur fram, ef ekkert verður gert og fjöldi fólks verður gjaldþrota þá fer mikið af því fólki, sárt og reitt, til útlanda og kemur sennilega aldrei aftur, þeir sem eftir verða hér á landi verða í neðanjarðarhagkerfi, jafnvel til framtíðar vegna þess að einhver getur keypt kröfuna og haldið henni við endalaust. Þessi nýju lög sem áttu að létta undir með þeim sem lenda í því að verða gjaldþrota gera ekkert annað, sýnist mér, en aðeins meiri vinnu fyrir þann sem á kröfuna, því eins og var samkvæmt gömlu lögunum þá þurfti að viðhalda kröfu á fimm ára fresti en núna á tveggja ára fresti.  
mbl.is Horfa grímulaust á eignirnar brenna upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hræðilegt fyrir heimilin í landinu ef rétt reynist

Þetta verður endapunkturinn fyrir allmarga ef rétt reynist. Lánin hafa þegar hækkað um c.a. 23 % frá október 2007 og eignir lækkað að nafnvirði um 10 % og að raunvirði um 25 %. Tökum dæmi: Ungt fólk átti 4 milljónir og keypti íbúð á segjum 20 milljónir í október 2007 og fékk 16 milljónir. þ.e. 80 % lán hjá Íbúðalánasjóð. Þetta unga fólk á í dag eign sem er verðmetinn á c.a. 18 m, m.v. 10 % lækkun á nafnvirði og á meðan hefur lánið hækkað upp í 19,7 m. Ef þetta fólk neyðist til að selja íbúðina sína í dag, segjum vegna þess að Lýsing, Avant eða S.P. fjármögnun er komið á eftir þeim með bílalánið sem komið er í vanskil þá tapa þau auðvitað þessum 4 m. sem þau áttu í íbúðinni og ekki nóg með það, þau þurfa að borga með íbúðinni 1,7 m til að geta selt hana þannig að heildartap þeirra er 5,7 m. miðað við þetta dæmi. Það sér það hver heilvita maður að þetta ástand er ekki viðunandi og hvað þá ef spá Seðlabankans rætist um 46 % raunlækkun fasteigna, það má bara ekki gerast að það rætist því þá held ég að allt of margir sem standa í dag betur en þetta unga dæmisfólk séu komin með neikvæða eiginfjárstöðu og þá gefst fólk bara upp með tilheyrandi skilnaðaröldu og öðrum leiðinlegum fylgikvillum fjármálavandræða. Tölum þetta frekar upp og stöndum saman, förum á morgun kl 13 fyrir framan Alþingishúsið og mótmælum úrræðaleysi og vangetu þessarar stjórnar sem er að reyna að lengja líf sitt þessa dagana og hefur tekið allt of langan tíma í það meðan heimilin brenna upp á skuldabálinu og fjölskildur kveljast.   


mbl.is 46% raunlækkun fasteigna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Látum Bretabullurnar ekki kúga okkur í gegnum IMF. Hverjir eru vinir okkar.

Látum Breta og Hollendinga ekki kúga okkur til ósanngjarnar lausnar á Icesafe deilunni og neyða okkur inn í Evrópusambandið í leiðinni eins og mér sýnist þeir vera að reyna.

Nú er lag til að finna hverjir eru þess virði að vera vinir okkar og sleppa þá frekar láninu frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum og herða sultarólina aðeins fastar á meðan verið er að vinna í að fá lán hjá öðrum, Norðmenn og Svíar að ógleymdum bestu frændum okkar í Færeyjum sýnist mér vera þeir sem vilja okkur best.

Rússarnir koma sterkir inn þó ekki sé alveg á hreinu hverju þeir sækjast eftir þó mér sýnist þeir vera að kaupa sér atkvæði hér hjá okkur og ákveðinn sess í heimsmálunum með þessari góðvild í okkar garð, það er bara allt í lagi finnst mér því þeir sem hingað hafa verið í okkar bestu vina tölu hafa ekki sýnt okkur nema yfirlæti og puttann í þessum þrengingum okkar.

Svo er spurning með aðra, Japanir hafa verið viljugir að ræða við okkur um lán og virðast vilja okkur vel og ekki vera í þessari Evrópupólitík sem puttalöndin eru svo uppfull af. 

Kínverjar eru sennilega eina þjóðin í heiminum í dag sem á nóg af peningum og því ekki að tala við þá, þeir eru að verða og sennilega orðnir eins og Japanarnir voru hér upp úr 1970, allt leikur í höndunum á þeim og þeir eru orðnir ein mesta, ef ekki mesta útflutningsþjóð í heiminum. 


mbl.is IMF-beiðni frestað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ósk um ábyrga fréttamennsku.

Á þessum ólgu og óvissutímum hlítur að vera hægt, ef einhvern tímann, að gera þá kröfu til fjölmiðla að þeir vandi fréttaflutning sinn af jafn viðkvæmum málum og húsnæðismarkaðurinn er í dag. Að setja þessa fyrirsögn á þessa frétt er fáránlegt og mbl.is ekki boðlegt að mínu mati. Ég hef hingað til verið þokkalega sáttur við fréttir mbl.is af þessum málaflokki og þó að þessi tiltekna frétt sé komin úr 24 stundum þá finnst mér mbl.is setja niður við svona æsifréttar fyrirsagnarstíl. Við höfum sorpblað sem hefur hingað til verið einrátt á þeim markaði og vona ég að 24 stundir séu ekki að fara í þá áttina með nýjum mönnum í brúnni.  
mbl.is Engin lán á ný hús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þú segir ekki

Hvenær koma erlendu bankarnir hingað til lands svo við þurfum ekki að treysta á íslensku bankana sem eru búnir að sýna og sanna að þeir vilja ekkert með okkur hafa og snúa við okkur bakinu um leið og færi gafst. Ekki fyrir svo löngu þá mátti maður ekki labba fram hjá banka án þess að hann dældi peningum í vasann hjá manni en nú fær maður ekkert þó maður fari inn og á hnéin. Hélt að íslensku bankarnir væru með þessar fínu greiningadeildir og alls konar deildir sem hefðu átt að vara þá við þessum hremmingum sem nú eru komnar fram og þar að auki skildi ég aldrei hvað þeir væru að gera inn á húsnæðismarkaðinn því þeir voru ekki að fara inn á hann til að bjóða þessa 4,15 % vexti sem voru á þeim tíma. Á uppgangstímunum þá kepptust greiningadeildir bankanna við að segja okkur að þessar verðhækkanir á húsnæði væru eðlilegar og í takt við og leiðrétting á okkar markaði til jafns við þá markaði sem við miðum okkur almennt við. Enda er ég viss um að það er rétt, þ.e. að verð hér á landi var langt á eftir verði í þeim löndum sem við erum alltaf að miða okkur við og þar að auki vil ég meina að verð hér eigi jafnvel að vera hærra en í þessum viðmiðunarlöndum okkar, bæði vegna þess hvað hér er allmennt gott að búa og svo eiga eftir að streyma hingað erlendir aðilar í efnaðri kantinum í friðinn og öryggið sem hér er, svona oftast.
mbl.is Útlán of lítil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband