Vantar ekki eitthvað í þessa mynd, hvar er samþykki skuldaranna

Þetta er allt á sömu bókina lært, það er samið við "hagsmunaaðila" en hvergi sést í skuldarana sem eru nú beinir hagsmunaaðilar að þessu dæmi og Hagsmunasamtökum heimilanna er haldið utan við málið með pólitík og það ljótri. Talað er um að þetta hljómi upp á um 100 milljarða en bara gert ráð fyrir að fara niður í 110 prósent, þannig að skuldarar standa eftir með 10 % yfirveðsetningu. Hver borgar þetta fyrir bankana því ekki gera þeir það sjálfir. Tökum dæmi: Tvær fjölskyldur keyptu sér sitt hvora íbúðina í sama húsinu 2007 á 25 milljónir. Önnur fjölskyldan tók 100 % lán og skuldar í dag um 33,2 milljónir. Hin fjölskyldan átti 10 milljónir og tók því 15 milljónir að láni og skuldar í dag um 20 milljónir. Gefum okkur að íbúðirnar kosti í dag um 20 milljónir og lánin hafi hækkað um c.a. 33 % samkvæmt verðtryggingu. Samkvæmt leið ríkisstjórnarinnar þá fær fyrri fjölskyldan sem tók 100 % lánið afskrifað niður í 110 % og skuldar því 22 milljónir og hefur engu tapað þó hún skuldi 2 milljónir umfram verðmæti. Hin fjölskyldan fær enga leiðréttingu, skuldar 20 milljónir og er búin að tapa þeim 10 milljónum sem hún lagði fram í upphafi þannig að hún er búin að borga fyrir leiðréttingu hins aðilans í þessu dæmi og gott betur. Þetta kostar ekkert fyrir bankana þegar verið er að færa lán í 110 % veðsetningu, veðsetningin var ónýt áður og ef þeim tekst að fá fólk til að borga af 110 % veðsetningu þá eru þeir að græða en ekki tapa því eðlilegt er að skuldari skuldi ekki meira en nemur verðmæti eignarinnar ef hann lagði eitthvað fram sjálfur í upphafi, ef bankinn lánaði honum 100 % í upphafi þá verður bankinn sjálfur að taka tapið af því. Það er enginn akkur í því fyrir neinn að skulda umfram verðmæti húsnæðissins síns og sinnar fjölskyldu.


mbl.is Vaxtakostnaður lækkar um 10%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

það er líka annað í þessu! mikið af fólki sem tók 70- 90% lán fékk lánað veð hjá foreldrum. t.d er fasteignamat á þinni íbúð 25milj í dag og skuldin hjá bankanum 30milj en veðið sem bankinn er með í þinni íbúð er kannski bara 25milj og hinar 5 milj eru með veð í húsi foreldra þinna þannig að þú ert með skuld uppá 120% af virði íbúðar en færð ekkert fellt niður og situr áfram í skuldarsúpuni því þeir eru með svo gott veð í íbuð foreldra þinna!!

Davíð (IP-tala skráð) 3.12.2010 kl. 12:50

2 Smámynd: Vilhjálmur Bjarnason Ekki fjárfestir

Davíð. Þetta er alveg rétt hjá þér. það eru mjög margir sem eru með þessi má á þennan veg hjá sér og sínum nánustu. Það er ekkert tekið á forsendubrestinum í þessu og ef þú getur borgað þá ertu látinn borga og færð enga leiðréttingu. Það þarf að fara leið Hagsmunasamtaka heimilanna og taka þá svo í öryggisnetið sem ekki ná að klára sig af með þeirri leið.

Vilhjálmur Bjarnason Ekki fjárfestir, 3.12.2010 kl. 13:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband