Talandi um að útlendingar séu vondir við okkur, sé ekki betur en íslenska fræðamannasamfélagið sjái um það

Fyrsti dagur hins nýja og frjálsa Íslands er í dag, en bara ef við höldum rétt á málum og JÁ menn verði ekki svo uppfullir af því að gera allt sem þeir geta til að þetta fari á þann versta veg sem þeir voru að hræða okkur á fyrir kosningarnar. Það er alveg hægt að láta þetta fara á hinn versta veg geri ég mér grein fyrir en það er líka hægt að rísa upp og fara að semja eins og menn.

Ef Jón t.d. talaði málið upp fyrir okkar hönd í stað þess að leggjast eina ferðina enn á magann þá mundi það hjálpa okkur, í stað þess þá er hann að hjálpa einhverjum öðrum og með svona snillinga eins og Jón og fleiri að tala fyrir okkar hönd erlendis og líka hér heima þá eigum við enga von.

Að ætla sér að láta okkur segja já við Icesave snérist fyrst og fremst um evrópusambandsumsóknina og að koma okkur tilneyddum þar inn, kvað sem það kostaði.

Með því að segja NEI og láta ekki hóta okkur til að segja annað erum við Íslendingar að rísa upp sem þjóð að nýju, rísa upp með reisn sem okkur hefur vantað allt of lengi vegna þess að núverandi stjórnvöld hafa verið föst í því að liggja flöt fyrir hverju sem rétt er að okkur til að borga vegna þess að hún er búin að sækja um aðild að Evrópusambandinu.

Þessi umsókn er búin að kosta okkur allt of mikið, bæði peningalega og ekki síst fyrir andlegan aumingjaskap sem hefur lagst eins og mara yfir þjóðina með sívaxandi þunga undanfarin rúm tvö ár frá hruninu.

Það átti að láta okkur skrifa undir óútfylltan feitan tékka vegna Icesave skuldar einkafyrirtækisins Landsbanks og það á, eða réttara sagt átti, að láta heimilin í landinu borga  stökkbreytt lán heimilanna, bæði ólöglega gengis og ósanngjörn verðtryggð lán án leiðréttingar bara vegna þess að ef við höguðum okkur ekki vel og borguðum allt eins og þeir vildu þá fengi Samfylkingin ekki að ganga í Evrópusambandið.

Þvílíkur aumingjaskapur sem okkur hefur verið boðið upp á undanfarið af stjórnvöldum og hefur raunar verið alla hennar daga, sérstaklega skil ég ekki hvernig VG geta látið bjóða sér þetta, en átta mig á draumum Samfylkingarinnar um að komast inn í kratadraumaheim sameinaðrar Evrópu.

Sem sagt, það átti að kosta hverju sem er til að koma okkur í Evrópusambandið, hvort sem það var gjaldþrot heimilanna eða þjóðargjaldþrot.

Eitt sem hefur stuðað mig hvað mest er hvernig flestir fjölmiðlar hafa tekið þátt í heilþvottinum um Icesave gagnrýnislaust. Er ég nokkuð viss um að þegar málið verður gert upp á endanum þá muni þar ýmis tengsl koma í ljós, t.d. hver á 365 miðla eða hvað það fyrirtæki heitir í dag og kvaða hagsmunir eru þar að baki, hver er t.d. yfirmaður fréttadeildar RUV og hvaða flokk styður hann og hver var það sem fann þennan vesalings mann á Árskógströnd sem kvaðst svo sáttur með aðgerðir ríkisstjórnarinnar, hann hefði fengið að taka út allan séreignar lífeyrissparnaðinn sinn til að borga stökkbreytt lán sín, það þurfti að draga fréttina til baka daginn eftir og biðjast afsökunar vegna þess að þeir gleymdu að nefna að þessi ánægði maður var fulltrúi VG á staðnum og flokksbundinn. Það sama má segja um fréttaflutning af stökkbreyttum skuldum heimilanna og allt tengt þeim.

Steingrímur segir nú að ekki megi tal hlutina niður, hver hefur hingað til talað hlutina meira niður en akkúrat hann, indíánahöfðinginn Klofin Tunga toppar sjálfan sig enn og aftur.

Ef rétt er á málum haldið þá verður eitt af því góða við útkomu þessarar kosningar það að hún gefur okkur einstakt tækifæri til að rísa upp og standa saman sem heild, láta ekki koma fram við okkur eins og vanvita af stjórnvöldum sem hafa leyft öðrum þjóðum að vaða yfir okkur á skítugum skónum.

Hingað og ekki lengra, nú er nóg komið, klárum dæmið og hreinsum út. Átta mig á því að það eru svo sem ekki margir kostir í stöðunni eins og sviðið lítur út í dag en lifi þó í voninni að það komi fram ný framboð, nýir aðilar eða bara einfaldlega hugsun í gömlu flokkana sem muni breyta öllu til hins betra. Ég er ekki viss um hvað tekur við en ég get lofað því að það getur ekki verið verra en það sem við höfum setið upp með undanfarin rúm tvö ár.

Annars, eins og ég hef margoft sagt áður, þetta snýst ekki lengur um flokka eða pólitík, heldur um að þetta frábæra land okkar verði byggilegt áfram fyrir það frábæra fólk sem byggir það.

Vilhjálmur Bjarnason, ekki fjárfestir.


mbl.is Jón: Eykur á einangrun Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband