Vantar ekki eitthvað í þessa mynd, hvar er samþykki skuldaranna

Þetta er allt á sömu bókina lært, það er samið við "hagsmunaaðila" en hvergi sést í skuldarana sem eru nú beinir hagsmunaaðilar að þessu dæmi og Hagsmunasamtökum heimilanna er haldið utan við málið með pólitík og það ljótri. Talað er um að þetta hljómi upp á um 100 milljarða en bara gert ráð fyrir að fara niður í 110 prósent, þannig að skuldarar standa eftir með 10 % yfirveðsetningu. Hver borgar þetta fyrir bankana því ekki gera þeir það sjálfir. Tökum dæmi: Tvær fjölskyldur keyptu sér sitt hvora íbúðina í sama húsinu 2007 á 25 milljónir. Önnur fjölskyldan tók 100 % lán og skuldar í dag um 33,2 milljónir. Hin fjölskyldan átti 10 milljónir og tók því 15 milljónir að láni og skuldar í dag um 20 milljónir. Gefum okkur að íbúðirnar kosti í dag um 20 milljónir og lánin hafi hækkað um c.a. 33 % samkvæmt verðtryggingu. Samkvæmt leið ríkisstjórnarinnar þá fær fyrri fjölskyldan sem tók 100 % lánið afskrifað niður í 110 % og skuldar því 22 milljónir og hefur engu tapað þó hún skuldi 2 milljónir umfram verðmæti. Hin fjölskyldan fær enga leiðréttingu, skuldar 20 milljónir og er búin að tapa þeim 10 milljónum sem hún lagði fram í upphafi þannig að hún er búin að borga fyrir leiðréttingu hins aðilans í þessu dæmi og gott betur. Þetta kostar ekkert fyrir bankana þegar verið er að færa lán í 110 % veðsetningu, veðsetningin var ónýt áður og ef þeim tekst að fá fólk til að borga af 110 % veðsetningu þá eru þeir að græða en ekki tapa því eðlilegt er að skuldari skuldi ekki meira en nemur verðmæti eignarinnar ef hann lagði eitthvað fram sjálfur í upphafi, ef bankinn lánaði honum 100 % í upphafi þá verður bankinn sjálfur að taka tapið af því. Það er enginn akkur í því fyrir neinn að skulda umfram verðmæti húsnæðissins síns og sinnar fjölskyldu.


mbl.is Skuldir færðar niður í 110%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já þetta er spes.

Semsagt sá sem fór óvarlega. Skuldsetti sig, tók 100% lán og allt í þeim dúr. Farið er í aðgerðir til að rétta hans hlut.

Hvað með þann sem fór ekki óvarlega ? sem borgaði inn á húsnæði sitt nokkrar milljónir og tók lán fyrir restinni. Innborgunin er horfin og ekkert er gert til að leiðrétta þjófnaðinn.

Eflaust hjálpar þetta fullt af fólki og er það gott. En skilaboðin eru að þeir sem fóru varlega, áttu peninga í sinni eign .... það voru mistök.... stór mistök. Ævisparnaðurinn í fasteigninni hefur verið gerður upptækur.

Frábært samfélag.

Einar (IP-tala skráð) 3.12.2010 kl. 13:23

2 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Þetta er eins vitlaust og það getur verið.

Taka hryggjarstykkið úr þjóðinni en láta glæframennina sleppa, stórskuldarana njóta fjármunanna og láglaunafók éta skít!

Það sem er hættulegast í þessu að það verður allt í einu til hellingur af því hættulegasta í heimi, nefnilega fólki sem hefur engu að tapa....

Óskar Guðmundsson, 3.12.2010 kl. 13:50

3 Smámynd: Hörður Þórðarson

Frábær færsla, Vilhjálmur, takk.

Hörður Þórðarson, 3.12.2010 kl. 17:21

4 identicon

Fjölskyldan sem tók 100% lán fer skv. þessu úr 33,2 milljónum niður í 22 sem eru 11,2 í niðurfærslu, en það gengur ekki upp vegna 7 milljónar hámarksins þ.a. í raun fer hún niður í 26,2 :)

Ármann (IP-tala skráð) 3.12.2010 kl. 23:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband