Kerfið og embættismenn stjórna landinu og það illa.

Þegar baráttukona eins og Theodóra​ hættir á Alþingi eftir aðeins ár er það miklu meiri yfirlýsing en Alþingi og almenningur gerir sér grein fyrir.

Hún segir að þing­störf­in hafa komið sér á óvart og að þau snú­ist ekki um stefnu­mót­un og fram­kvæmd verk­efna. Þau séu meira eins og mál­stofa. Flest mál sem samþykkt eru koma úr ráðuneyt­um í gegn­um rík­is­stjórn. Við þing­menn höf­um svo það hlut­verk að fjalla um þau en kom­um hvergi að neinni stefnu­mót­un eða ákv­arðana­töku um strauma og stefn­ur.

Þó þing­menn geti vissu­lega lagt fram alls kyns mál að eig­in frum­kvæði þá sé það ekki mjög væn­legt til ár­ang­urs því henni sýn­ist samið um það að hver flokk­ur fái eitt þing­manna­mál samþykkt. Það fer því mest all­ur tími þings­ins í umræður og fram­lagn­ingu mála sem all­ir vita að fást lík­lega ekki samþykkt. Ég varð í raun mjög hissa á því hvað þingið er óskil­virkt.

Þessi upplifun Theodóru er sú sama og aðrir þingmenn og konur sem hafa viljað breyta Íslandi hafa sagt við okkur í Hagsmunasamtökum heimilanna eftir að þau hafa farið þarna inn full eldmóðs. Það er sagt við nýja stjórnarþingmenn að þeir skuli vera þægir og góðir og hlýða í einu og öllu því annars eyðileggji þeir sjálfa sig, flokkinn sinn og ríkisstjórnina. Þetta er ekki endilega sagt við þau af pólitíkinni heldur eru það kerfisfólkið og embættismenn sem starfa innan og utan þing sem segja þetta við þau og bæta við ef þau hafa verið að hlusta á Hagsmunasamtök heimilanna að það sé alveg bannað.

Það er í raun kerfið, lesist embættismenn, sem stjórnar landinu en ekki Alþingi eða pólitíkin. Þetta sama kerfi og er búið að gera svo mikið af mistökum að almenningur og sjálfsögð mannréttindi almennings er fótum troðinn í landinu og verður það þangað til fleiri alvöru baráttumenn eins og Theodóra komast á þing og hafa bein í nefinu til að berjast við höfuðandstæðing almennings, KERFIÐ.

Til hvers erum við að þykjast vera með Alþingi og fulltrúalýðræði þegar það eru alltaf sömu embættismennirnir sem stjórna landinu alveg sama hvaða flokkur eða pólitík er við völd.

Tek samt fram að ég hef ekki talað um þetta við Theodóru en mun funda með henni eftir helgina.


mbl.is Theodóra segir af sér þingmennsku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 26. ágúst 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband